Framavika Háskóla Íslands fer fram í næstu viku, dagana 13.-17. febrúar. Dagskrá Framavikunnar samanstendur af fjölbreyttum fyrirlestrum, viðburðum og vinnustofum en meðal þess sem verður á boðstólum eru fyrirlestrar á vegum fulltrúa LinkedIn. Það er Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ) sem stendur fyrir dagskránni.