Bókmenntahorn ritstjórnar: Bækur til að lesa í jólafríinu
Líkt og alþjóð veit blómstrar bókaútgáfa hér á landi aldrei meira en vikurnar fyrir jól. Það er fátt íslenskara en að fá glænýja bók í jólagjöf og útgefnum titlum fjölgar ár hvert. Við í ritstjórninni erum gífurlega spennt fyrir bókunum sem eru að koma út fyrir þessi jól, auk þess sem við lumum á nokkrum góðum erlendum bókum sem við höfum lesið nýlega.
Íslenskar bækur:
Guð leitar að Salóme - Júlía Margrét Einarsdóttir
Guð leitar að Salóme er nýjasta skáldsaga Júlíu Margrétar Einarsdóttur en hún sló eftirminnilega í gegn með sinni fyrstu, Drottningin á Júpíter. Hér segir frá ungri konu sem hefur týnt kettinum sínum og ákveður að setjast niður á Kringlukránni og skrifa bréf til horfinnar ástar. Júlía Margrét er þekkt fyrir lifandi frásagnarstíl og skrautlegar persónur en hér koma til dæmis við sögu spákona og drykkfelldur organisti, guðhræddar smásálir og framliðinn sjómaður. Í bréfum sínum afhjúpar Salóme í fyrsta sinn sjálfa sig, sína hryllilegu fortíð og fjölskylduharmleik í ljúfsárri frásögn. Bréfin skrifar hún eitt á dag fram að jólum, 23 samtals, og er bókin því fullkomin jólalesning!
Umframframleiðsla - Tómas Ævar Ólafsson
Umframframleiðsla er fyrsta ljóðabók Tómasar Ævars Ólafssonar, sem hefur getið sér gott orð fyrir dagskrárgerð á Rás 1 og stundar meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Frásögnin er næm og snertir á ýmsu, þar á meðal kvíða, óefni, minningum, úrvinnslu og þeim þyngdarbreytingum sem eiga sér stað í mannslíkamanum þegar við deyjum. Ljóðin eru djúp og innihalda fjölda áhugaverðra lýsinga sem kalla á annan lestur og frekari íhugun. Tómas er í hópi fjölmargra spennandi ungra höfunda sem gefa út verkin sín hjá Unu útgáfuhúsi, en það er eitt ferskasta og framsæknasta útgáfuforlag dagsins í dag, með sterka tengingu við grasrótina.
Úti - Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson var fljótur að festa sig í sessi sem einn fremsti glæpasagnahöfundur Íslands. Hann hefur gefið út eina bók fyrir jólin síðustu 12 árin, og á því er enginn undantekning í ára. Nýjasta bók hans, Úti, er sálfræðitryllir um fjóra vini sem leita skjóls í litlum veiðikofa upp á heiði, en margt er hættulegra en blindbylur og vinirnir fjórir munu ekki allir lifa dvölina af. Við erum mjög spennt fyrir jólaglæpasögunum og Ragnar hefur svo sannarlega ekki valdið vonbrigðum síðustu ár.
Merking - Fríða Ísberg
Orðið „loksins“ á sjaldan jafn vel við og núna þegar út er komin skáldsaga í fullri lengd eftir Fríðu Ísberg. Fríða hefur skotist upp á bókastjörnuhimininn undanfarin misseri með ljóðabókunum sínum, Slitförin og Leðurjakkaveður, og smásagnasafninu Kláða. Skáldsagan Merking fjallar um nokkrar aðalpersónur í atburðarás sem á sér stað í Reykjavík á sjötta áratug 21. aldarinnar, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um merkingarskyldu. Merkingin gerir öðru fólki kleift að vita hvort þú hefur staðist hið svokallaða „samkenndarpróf“ og eigir erindi í samfélag hinna siðmenntuðu. Við erum miklir aðdáendur Fríðu Ísberg og getum ekki beðið eftir því að lesa skáldsögu eftir hana í fullri lengd!
Erlendar bækur:
Humankind: a Hopeful History - Rutger Bergman
Bókin Humankind: A Hopeful History eftir Rutger Bergman kom út í fyrra en áður hafði bókin Utopia for Realists komið út þremur árum fyrr. Bergman fjallar að einhverju leyti um svipað efni og Yuval Noah Harari í bókum sínum Sapiens og Homo Deus nema hvað Bergman er nokkuð jákvæðari í hugsanahætti og skrifum. Í Humankind fer hann í gegnum sögu síðustu 200.000 þúsund ára, og gengur út frá því að fólk sé yfirleitt og yfirhöfuð gott. Mjög áhugaverð lesning og sérstaklega í skammdeginu þar sem hún kveikir á jákvæðu heilasellunum.
Það sem hangir um hálsinn - Chimamanda Ngozi Adichie
Nígeríski metsöluhöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie hefur vakið athygli fyrir alþjóðlega kvenréttindabaráttu sína og er meðal dáðustu rithöfunda samtímans. Það sem hangir um hálsinn er marglaga smásagnasafn í þýðingu Janusar Christiansen sem Una útgáfuhús gefur út í bókaflokknum Sígild samtímaverk. Um er að ræða heillandi og tilfinninganæmar sögur um stöðu kvenna í karllægu samfélagi, sambönd foreldra og barna og þjóðfélagslegan óstöðugleika í Afríku. Hér er sögum um harðindi og ást á föðurlandinu fléttað saman þar sem Adichie kafar djúpt í vandamál nútímans.
Ilium - Dan Simmons
Í Ilium eftir Dan Simmon er saga Trójustríðsins rekin á nýstárlegan hátt. Bókin svarar spurningum sem lesanda hefði aldrei dottið í hug að spyrja eins og til dæmis: „Hvað ef grísku guðirnir byggju á Mars í fjarlægri framtíð?”, „Hvað ef þeir notuðu tímaflakk til að fylgjast með Trójustríði á 12. öld f.Kr.?” og mikilvægast af öllu „Hvað ef internetið fengi mikilmennskubrjálæði?” Í bókinni fléttast saman forngrískar bókmenntir, leikrit Shakespeare og heimspekihugmyndir Proust. Skyldulesning fyrir lesendur í leit að krefjandi frásögn.
Sjálfsævisaga Alice B. Toklas - Gertrude Stein
Sjálfsævisaga Alice B Toklas eftir Gertrude Stein í þýðingu Tinnu Bjarkar Ómarsdóttur er hluti af bókaflokknum Sígild samtímaverk sem kemur út hjá Unu útgáfuhúsi. Titillinn einn og sér gefur vel til kynna hvers vegna þessi bók er jafn frábær og hún er. Gertrude Stein ritar „sjálfsævisögu“ ástkonu sinnar Alice B. Toklas, þar sem Stein sjálf er raunverulegur miðpunktur sögunnar. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt að lesa um lífið í París um aldamótin 1900, kynnast rithöfundum, málurum, málverkasölum og bóhemlífinu sem einkenndi þetta tímabil Evrópusögunnar.