„Við viljum að öll séu alltaf velkomin“
Erna Lea Bergsteinsdóttir er annars árs nemi í félagsráðgjöf og forseti Félags- og menningarlífsnefndar Stúdentaráðs. Blaðamaður Stúdentablaðsins hitti Ernu Leu á dögunum til að ræða hlutverk nefndarinnar og hvernig hún hefur orðið fyrir áhrifum heimsfaraldursins.
„Við erum að vanda okkur mjög mikið“
Aðspurð hvert helsta verkefni Félags- og menningarlífsnefndar Stúdentaráðs sé segir Erna Lea að fyrst og fremst sé markmið hennar að sporna gegn félagslegri einangrun nemenda háskólans. „Þar með hafa allir einhverja félagslega viðburði til þess að mæta á og geta þar með skapað félagsleg tengsl við samnemendur og þar fram eftir götunum. Ég tel það mikilvægt að allir geti upplifað gott félagslíf innan háskólans óháð námsgrein,“ segir Erna. Hún bætir við að það séu einnig fastir viðburðir sem nefndin heldur utan um yfir skólaárið. „Þar má til dæmis nefna Mínútuleikana á Októberfest, Vísó í Stúdentaráð, Fyndnasta Háskólanemann, Partýbingó og Vísó í Þrennu“ segir Erna.
Hún segir að það sé erfitt að vinna að þessum hefðbundnu verkefnum á tímum sem þessum. Þegar viðtalið var tekið höfðu þau ekki enn haft tök á að halda viðburði sökum ástandsins í samfélaginu. „Við í nefndinni erum að bíða og sjá hvað gerist en erum auðvitað líka á fullu að skipuleggja viðburði sem eru í takt við tímann, en það er erfitt, sérstaklega þar sem við erum ekki nemendafélag. Nemendafélög einskorðast við eina deild en við erum með allan háskólann og við viljum ekki velja úr hverjir mega koma eða eitthvað slíkt. Við viljum að öll séu alltaf velkomin. Þess vegna erum við að vanda okkur mjög mikið og erum því bæði að skipuleggja okkur í kringum veiruna en einnig að reyna að vera bjartsýn og höldum í vonina um að geta haldið einhverja viðburði yfir skólaárið og erum því líka í undirbúning fyrir slíkt,“ segir Erna Lea.
„Það er allskonar hægt að gera“
Aðspurð hvort nefndin sé að vinna að einhverjum veiru-vænum útfærslum á viðburðum segir Erna að nefndin sé að íhuga rafræna útgáfu á þeim. „Mig langar ekki að opinbera allar hugmyndirnar sem við erum með því við erum ekki búin að staðfesta þessa viðburði eða hvort við getum fundið útfærslu á þeim. Við höfum verið í mikilli hugmyndavinnu frá því skólaárið byrjaði og út frá því spruttu upp margar góðar hugmyndir. Þá var staðan í samfélaginu hins vegar önnur en hún er núna þannig maður er mikið að endurskoða og útfæra viku eftir viku,“ segir hún. Erna bætir við að um það leyti sem viðtalið var tekið var nefndin að skipuleggja rafrænt partýbingó sem þau vilja gera mjög veglegt. „Þetta verður ekki bara einhver að lesa upp tölur á skjá, við ætlum að reyna að gera það eins fyndið og skemmtilegt og við mögulega getum. Það er allskonar hægt að gera,“ segir hún.
Nefndin hefur einnig verið dugleg að undirbúa viðburði með hefðbundnara sniði þegar tækifæri gefst. „Vísó í Stúdentaráð hefur verið samþykkt á Stúdentaráðsfundi. Hefðin er að sá viðburður sé haldin í byrjun skólaársins en af augljósum ástæðum var það ekki möguleiki. En okkur langar rosalega mikið að halda það og við bíðum eftir tækifærinu. Síðan er til dæmis Fyndnasti Háskólaneminn og Vísindaferð í Þrennu vanalega haldið á vorönn og það er engan veginn hægt að gera sér grein fyrir hver staðan verður þá. Við vonumst auðvitað eftir því að geta haldið þá viðburði með hefðbundnum hætti,“ segir Erna. Þó megi ekki gera ráð fyrir því að komandi viðburðir á vegum nefndarinnar muni fela það í sér að fólk komi saman. „Við erum stöðugt að endurmeta stöðuna og viljum halda einhverja skemmtilega viðburði um leið og tækifæri gefst. Það væri líka svo leiðinlegt að skipuleggja einhvern geggjaðan viðburð, búin að gera og græja allt og síðan verða hertar aðgerðir vegna COVID. Við viljum allavegana bægja frá því að slíkt gerist,“ segir hún.
Mikilvægt að reyna að vera frumleg
Blaðamaður Stúdentablaðsins spyr Ernu hvort henni finnist eitthvað jákvætt hafa komið út úr ástandinu í samfélaginu fyrir starf nefndarinnar. Hún segir að svo sé ekki en bætir því við að hún sé að sama skapi dugleg að líta á björtu hliðarnar og ef til vill sé fullsnemmt að segja til um hvort það muni hafa einhver jákvæð áhrif á starfið. „Maður þarf alveg að vera frumlegur og kannski kemur einhver nýr og skemmtilegur viðburður út frá þessu sem verður síðan ef til vill fastur liður hjá nefndinni. Það væri alveg jákvætt. Að prófa eitthvað nýtt og prófa að hafa eitthvað rafrænt og sjá hvort það hafi kannski jákvæð áhrif á þátttöku. Maður verður að bíða og sjá hvað það varðar. En það er auðvitað ótrúlega leiðinlegt að fresta viðburðum og það vegur svo þungt. Októberfest og Mínútuleikarnir, til dæmis, er svo góð leið fyrir nýnema að koma sér inn í félagslíf skólans en svo var auðvitað ekki hægt að halda neitt slíkt, sem er auðvitað mikil synd. Það hefur enginn viðburður verið haldinn fyrir nýnema og mér finnst það mjög leiðinlegt og setur ef til vill strik í reikninginn hvað varðar upplifun þeirra á háskólalífinu. Það gæti alveg verið skemmtilegt og eitthvað sem væri hægt að nýta seinna þó svo að maður megi hittast, það gæti komið mjög skemmtilega út,“ segir Erna Lea.
Að lokum vill Erna Lea hvetja nemendur HÍ til að vera eins virk í félagslífinu og kostur er. Þá vill hún sérstaklega hvetja nýnema til að leggja sig fram við að kynnast nýju fólki. „Það er erfiðara á tímum sem þessum en það er mjög mikilvægt að mínu mati. Vera opin og þolinmóð fyrir aðstæðunum og vonandi verður þetta búið sem fyrst.“