Vaka ritar : Sjúkrapróf í janúar, afhverju ekki?

Stúdentablaðið vill minna alla nemendur Háskóla Íslands á stúdentaráðskosningar sem fara fram dagana 3. og 4. febrúar næstkomandi. 
Í leiðinni viljum við vekja athygli á kosningunum og fylkingunum tveimur á Stúdentablaðsvefnum með því að birta greinar frá fylkingunum. 

Hér ritar framboðslisti Vöku fyrir félagsvísindasvið.

Sjúkrapróf í janúar, afhverju ekki? 

Siggi skráði sig í Háskóla Íslands beint eftir stúdentsprófið. Hann mætir samviskusamlega í tíma, enda ekki langt að fara frá íbúðinni hans á stúdentagörðunum. Fjárhagsstaðan er því miður ekki eins og best verður á kosið og því er Siggi háður námslánum frá LÍN, rétt eins og svo margir aðrir.                    

Siggi hefur gaman af náminu sínu og gengur vel stemmdur inn í fyrstu prófatörnina. Eins og svo oft áður er vetur í desember, bærinn fyllist af snjó og göturnar breytast í óumbeðið skautasvell. Á leið sinni heim frá Þjóðarbókhlöðunni þarf Siggi að þvera Suðurgötuna. Hann lítur til beggja hliða en einhver er að drífa sig aðeins of mikið, nær ekki að bremsa í tæka tíð og síðan er allt svart.                        

Siggi vaknar í sjúkrarúmi á Landspítalanum og er tjáð að hann hafi brotnað á nokkrum stöðum og hlotið þungt höfuðhögg, hugsanlega heilahristing. Nú er útlitið svart. Siggi á að mæta í próf daginn eftir en varla fer hann að taka próf í þessu ástandi, rúmliggjandi maðurinn. Hann neyðist því til að hringja sig inn veikan og fær lækninn sinn til að skrifa upp á vottorð fyrir sig.                                        

Um miðjan janúar fær Siggi bréf frá LÍN, hann stóðst ekki námsframvindukröfur sjóðsins og fær námslánin sín því ekki greidd út. Sigga er brugðið, enda eru námslánin grundvöllur þess að hann eigi í sig og á. Daginn eftir berst honum bréf frá Félagsstofnun stúdenta þar sem segir að skv. þeirra gögnum hafi hann ekki skilað þeim 18 einingum á haustönn sem eru forsenda áframhaldandi veru hans á stúdentagörðunum.                                                  

Ekki hafði hann órað fyrir því að hálkan á Suðurgötunni gæti haft svona afdrifarík áhrif á líf eins háskólastúdents. „Af hverju eru ekki bara sjúkrapróf í janúar“, hugsar Siggi og kveikir á Netflix.      Þótt sagan af Sigga sé spunnin úr hugarheimum höfunda byggir hún því miður á raunveruleika of margra stúdenta við Háskóla Íslands. Núverandi fyrirkomulag sjúkra- og endurtökuprófa veldur á ári hverju fjölda stúdenta vandræðum. Því viljum við í Vöku beita okkur fyrir því að þau verði einnig haldin í janúar og koma þannig í veg fyrir að fleiri lendi í sömu aðstæðum og Siggi.

 

Þessi grein er skrifuð sem hluti af greinaskriftaátaki Vöku í tilefni Stúdentaráðskosninga sem fara fram dagana 3. og 4. febrúar.

- Framboðslisti Vöku fyrir Félagsvísindasvið

SjónarmiðGuest User